
Um er að ræða staðlaða framleiðslu, viðgerðarþjónustu og framleiðslu að ósk hvers viðskiptavinar. Einnig er fyrirtækið með smíði á ýmsum kerrum, m.a. LEIKNIR hestakerrum, sem eru þekktar fyrir gæði og lipurð í drætti og glæsileika.
Innflutningur og lager
Fyrirtækið hefur um árabil verið með innflutning á hinum ýmsu vörum, bæði til eigin smíða og framleiðslu og einnig til endursölu. Má þar nefna flexitora, beisli og tilheyrandi fyrir kerrur, álefni eins og álborð, teppi og áklæði í bíla, öryggisbelti og opnanlega glugga í kerrur, krossvið í sérstærðum, plastplötur í ýmsum stærðum, vörulyftur á bíla, gúmmímottur og fleira.
Umboð
Fyrirtækið hefur um árabil verið með umboð fyrir GOVAPLAST, sem er gæðaplast notað í gripahús og til ýmissa nota þar sem mikið mæðir á og þörf er á viðhaldsfríu efni.
Heitklæðning
Heitklæðning á palla af öllum gerðum pallbíla og hestakerrum ásamt sendibílum og farþegabílum. Heitklæðningin er gúmmíkennd húð sem sprautuð er heit á fleti og hefur gríðarlega viðloðun og styrkleika. Enska heitið á efninu er „FMJ“ sem stendur fyrir „Full Metal Jacket“ og því fylgir alltaf „Some things are made to last“, sem útskýrir styrkleika og eiginleika efnisins.



